Stafrænn Kristófer

Ekki pota í mig

fimmtudagur, júlí 21, 2005

 
Lidid um post. Er nuna i Hokkaido. Nakvaema stadsetningu ma, thokk se google maps, sja her gef ferdasoguna seinna. Buid ad vera rosalega gaman fram ad thessu.

fimmtudagur, júlí 07, 2005

 
Jæja kominn tími til að bæta einhverju á þessa blessuðu síðu. Búinn að vera reglulega upptekinn síðustu 2 vikurnar. Veit ekki hvort ég var búinn að segja frá því eða ekki en ég er að kenna ensku í einkatímum (tutoring) 3 í viku og fæ fyrir það ágætis pening. Meðan ég er ekki að kenna þá er ég í heimsóknum hér og þar eða að fara eitthvað með núverandi homestay mömmunni eða hinni úr fyrri fjölskyldunni. Fór í gær í fyrradag í Universal Studios Japan í annað skiptið nema hvað núna var farið með homestay mömmunni, vini hennar og svo Englendinnum Colin. Helvíti fínt bara þótt það hafi rignt aðeins. Síðasta sunnudag var ég svo með þokkalega stóra kynningu á Íslandi þar sem tæplega 20 manns mættu til að hlusta á mig rambla um Ísland á Japönsu og horfa síðan á nokkur vel valin atriði af DVD disknum sem fæst á Aichi Expo. Þetta heppnaðist allt saman alveg frábærlega þótt maður hafi einstaka sinnum stamað á japönskunni þegar maður las orð eins og "lífslíkur" og "ferkílómetrar". Ég er líka að fara að senda heim hvorki fleiri né færri en 3 kassa. Allt verður sent með skipi og ætti að komast á klakann einhverntíman í október. Nú þegar er einn kassi á leiðinni og ég ætla rétt að vona að þetta allt komist á leiðarenda. Í einum kassanum sem ég er að fara að senda eru eiginlega bara bækur, og megnið af þeim japanskt manga sem ætti að halda japönskunni góðri. Megnið af því fékk ég líka gefins frá homestay fjölskyldunum en ef einhver vissi það ekki þá lesa Japanir óhemju magn af teiknimyndasögum. Sú sem hefur verið lengst í gangi er komin á bók nr 150 og fjallar um lögreglumann. Það eru til manga bækur fyrir alla í þjóðfélaginu, smábörn, grunnskólakrakka, stelpur í gaggó og stráka í gaggó, háskólanema, skrifstofufólk, heimavinnandi húsmæður, íþróttafrík, bara jú neim it. Jæja þarf að fara að troða meiru í kassana áður en ég sendi þá.

Archives

maí 2002   júní 2002   júlí 2002   nóvember 2002   janúar 2003   febrúar 2003   mars 2003   apríl 2003   maí 2003   júní 2003   júlí 2003   september 2003   nóvember 2003   desember 2003   janúar 2004   febrúar 2004   mars 2004   apríl 2004   maí 2004   júní 2004   júlí 2004   ágúst 2004   september 2004   október 2004   nóvember 2004   desember 2004   janúar 2005   febrúar 2005   mars 2005   apríl 2005   maí 2005   júní 2005   júlí 2005   ágúst 2005   nóvember 2005   janúar 2006  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?