Stafrænn Kristófer

Ekki pota í mig

mánudagur, maí 30, 2005

 
Ekki skrifad mjog lengi tvi eg hef mjog takmarkadan internetadgang. Er fluttur i homestay og byrjadur ad kenna ensku. Aefi mig alveg heilmikid i japonsku med homestay fjolskyldunni. Myndi setja inn myndir en thad verdur bara ad bida thangad til eg kemst a internet kaffihus. Eg er allavega a lifi :)

laugardagur, maí 21, 2005

 
Útskrift í dag, FRÍR BJÓR! Var verulega drukkinn kl 3 í glampandi sól og hita. Þunnur kl 6. Geðveikt

föstudagur, maí 20, 2005

 
Kláraði prófin á miðvikudaginn. Fagnaði með subbulegu fyllerí. Reyndar var ég alveg geðveikt góður fyrr á miðvikudaginn þegar ég hjólaði í skólann í rigningu en hélt á regnhlífinni í hægri hendi meðan ég hjólaði. Það var þokkalegt rok þannig að ég hélt regnhlífinni langt fyrir framan mig og sá þá voðalega lítið hvað var fyrir framan mig. Vegurinn ákvað líka að vera svona líka svakalega lúmskur og beygja allt í einu til hægri. Ég reyndi eftir bestu getu að bremsa og beyja en það er hægara sagt en gert þegar bremsurnar eru blautar þannig að ég í staðin fór utan í kantinn og hrundi svo ég gangstéttina. Það merkilega við það þegar maður dettur svona eða eitthvað kemur fyrir mann er að meðan það er að gerast þá finnst manni allt vera mjög óraunverulegt. Það er eins og maður sé í draumi og þetta sé ekki að gerast í alvöru og það hægist á öllu. Nú ég hruflaði aðeins á mér hnéið og gat ekki beint stigið fast í það eftir þetta. Mesta sárið var samt á stoltinu. Reyndar var það allra fyrsta sem ég gerði eftir að hafa runnið rúman metra á gangstéttinni að líta í kringum mig til að vera viss um að enginn hefði séð mig. Svo athugaði ég hvort það væri nú ekki alveg í lagi með mig. Hefði verið alveg hræðilegt ef ég hefði púllað þetta stunt fyrir framan hóp af japönskum stelpum.

laugardagur, maí 14, 2005

 
Nýjar myndir!

Loksins búinn að drullast til að henda inn nýjum myndum. Hef ekki tíma til að skrifa um neitt núna og er í prófum fram á miðvikudag þannig að einhverntíman á miðvikudaginn skrifa ég.
 

















mánudagur, maí 02, 2005

 
Lífið er svo sannarlega búið að vera ljúft síðustu dagana. Núna er svokölluð "Golden Week" í gangi en hún samanstendur af fullt af frídögum sem er búið að þjappa öllum saman. Þetta byrjaði í síðustu viku með fríi á föstudeginum. Svo er skóli í dag, mánudag, en svo frí þriðju-, miðviku- og fimmtudag en skóli á föstudaginn. Það sem gerir þetta alveg einstaklega gott líka er að það er búið að vera alveg frábært veður þannig að maður er búinn að nýta tímann í að hanga úti og jafnvel að manni hafi tekist að ná sér í smá lit.

Archives

maí 2002   júní 2002   júlí 2002   nóvember 2002   janúar 2003   febrúar 2003   mars 2003   apríl 2003   maí 2003   júní 2003   júlí 2003   september 2003   nóvember 2003   desember 2003   janúar 2004   febrúar 2004   mars 2004   apríl 2004   maí 2004   júní 2004   júlí 2004   ágúst 2004   september 2004   október 2004   nóvember 2004   desember 2004   janúar 2005   febrúar 2005   mars 2005   apríl 2005   maí 2005   júní 2005   júlí 2005   ágúst 2005   nóvember 2005   janúar 2006  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?