Stafrænn Kristófer

Ekki pota í mig

þriðjudagur, desember 30, 2003

 
Þá er maður búinn að taka á í fyrsta skipti síðan fríið byrjaði. Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að það snjóaði frekar mikið í nótt, a.m.k. var allt planið hjá okkur þakið sjó. Þeir einu sem komust úr götunni í morgun voru jeppagaurarnir sem brostu út að eyrum meðan þeir brunuðu fram og til baka í götunni til að gera aðeins auðveldara fyrir aumingjana á fólksbílunum. Til hamingju, eina skiptið á árinu sem þessir gaurar geta notað jeppann sinn eitthvað af viti, hina 364 dagana nota þeir jeppann til innanbæjarkeyrslu! Jæja maður skellti á sig húfu og vettlingum og fór út að moka innkeyrsluna. Þetta var nú bara helvíti hressandi en ég er alveg gjörsamlega búinn að vera. Þakka fyrir að hafa ekki þurft að keyra í vinnu eða skóla í morgun. Það voru víst frekar margir fastir hér og þar um bæinn í dag og björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast að hjálpa illa búnum bílstjórum að komast leiðar sinnar. Vona að það verði ekki fleiri svona dagar, sérstaklega ekki eftir að skólinn byrjar...þótt Hondan sé helvíti öflug þá er hún ekkert torfærutryllitæki.

föstudagur, desember 26, 2003

 
Max Payne 2 Ég lagði ekki í Homeworld strax heldur skellti mér bara í Max Payne 2 sem reyndist vera hin ágætasta skemmtun. Hann er nákvæmlega eins og fyrri leikurinn nema núna er komið bullet-time v2 eða eitthvað álíka. Ég veit ekkert hvað það er því ég tók ekki eftir neinum mun fyrir utan einhver rosa "töff" atriði þegar maður hleður skotvopnin í slow motion með svaka sveiflu meðan myndavélin fer hring í kringum mann. Hann er að sjálfsögðu miklu flottari en fyrirrennarinn þó ég viti nú ekki hversu mikinn mun ég er að sjá með mínu ástkæra GF2 korti. Engu að síður er hann mjög fallegur. Nýjung er svo að maður fær að stjórna konu í smá tíma...munurinn á að stjórna henni og Payne er nákvæmlega enginn. Samt...skemmtilegt. Nú sagan er alveg jafn corny og í fyrri leiknum en heldur manni samt við efnið. Ég held þeir séu alveg að gera sér grein fyrir því hvað samtölin í comic-book-cutscenunum eru hallærisleg og geri í raun út á að hafa þau sem fáránlegust. Mér fannst þau a.m.k. nokk fyndin á köflum. Þetta virkar nú samt alveg stórvel og ég hefði ekkert verið sáttari þótt í stað þeirra hefðu verið video. Allavega þá er þessi leikur fullur af hasar, slow motion, bullet-dodging og ljótu málfari, allt gert á hinn smekklegasta máta. Að mínu mati bráðskemmtilegur leikur þótt hann hafi nú verið full stuttur. Það virðist vera tískubóla í dag að hafa leikina stutta. Ég giska á að það fari allt of mikill tími í að gera flotta grafík á kostnað lengdar og dýptar leikja. Gerir mann ekkert óðan í að kaupa þá.

miðvikudagur, desember 24, 2003

 
Call of Duty Fyrsti leikurinn sem ég tek mér fyrir hendur að klára eftir að hafa uppfært tölvuna er Call of Duty. Ég kláraði hann á 2 dögum og var nú ekkert að spila alveg rosalega mikið þannig að hann er temmilega stuttur. Hann er nú samt fjandi góður en maður er nú farinn að fá nóg af öllum þessum WW2 leikjum. Það koma reyndar fullt af Vietnam leikjum á næsta ári sem er kannski ákveðið skref fram á við. Samt spurning um hversu sick þessir leikir eru, verið að gera dauða og kvöld milljóna manna og einhvern stærsta atburð í sögu mannkyns að litlum leik sem fólk krakka-vitleysingar skemmta sér svo við að spila. Ég spila þessa leiki nú samt og hef bara gaman að. Ég mæli a.m.k. með því að allir sem hafa hardwareið í hann spili hann....mæli þá sérstaklega með að menn hafi eitthvað betra en GeForce 2 því mitt var ekki alveg að standa sig. Leikurinn fraus einu sinni að því er virðist af því skjákortið ofhitnaði. Venjulega þegar maður deyr þá kemur blurry slow motion jiggy en það hættir að koma hjá mér eftir langa spilun og í staðin verður allt sjúklega choppy. Stuttu eftir að þetta gerðist fyrst þá fraus leikurinn og windows með, gat ekkert gert en það kom skemmtileg lína af svörtum punktum á skjáinn. Ég varð ákaflega glaður. Svo fannst mér leikurinn ekki líta neitt betur út en Return To Castle Wolfenstein en sá leikur kom út fyrir þó nokkru síðan...gott merki um að ég þurfi að uppfæra skjákortið. Nú anyway, stórskemmtilegur leikur í single player og eftir að hafa spilað hann í 8-manna multiplayer þá get ég vitnað um að hann er líka snilld í mp. Það er líka mjög skemmtilegur fídus þar því eftir að maður er drepinn þá sér maður síðustu 20 sekúndurnar frá sjónarhorni þess sem drap mann þannig að maður getur séð hvernig bastarðurinn fór að því að hitta mann. Getur vakið kátínu og reiði, sérstaklega ef maður er drepinn fyrir einskæra heppni. Ég mæli allavega með þessum leik. Nú er bara spurningin hvaða leik maður spilar næst...mér líst helvíti vel á Homeworld 2...held ég láti KOTOR bíða aðeins.

þriðjudagur, desember 23, 2003

 
Þar eð ég er búinn að uppfæra tölvuna þá verður eitthvað lítið um uppfærslur hérna :) got some catching up to do, spila tölvuleikina sem ég hef misst af.

fimmtudagur, desember 18, 2003

 
GBA SP Það er góð tilfinning að vera með þetta tæki í höndunum. Fyrst fékk ég starter pakkann og hulstrin sem ég gat...horft á. Svo fékk ég tölvuna sjálfa í gær en var ekki með neinn leik þannig að ég gat bara handleikið hana og kveikt og slökkt, mjög skemmtilegt en samt ekki til lengdar. Svo í dag var Gummi svo vænn að lána mér Metroid Fusion sem ég er búinn að spila aðeins of mikið í dag. Tími sem hefði betur farið í lærdóm fyrir síðasta prófið sem er jú á föstudaginn. Það viðurkennist alveg að skjárinn á þessu kvikindi er soldið lítill en það merkilega er að maður hættir strax að taka eftir því. Myndin er ótrúlega skýr og merkilegt nokk þá eru leikirnir í 32bit color. Hátalarinn er samt ekkert að gera neitt rosalega hluti en skilar sínu, miklu betra að vera með headphones. Þeir hafa líklega búist við því og séð fram á ótrúlegan gróða því maður þarf að kaupa sér adapter til að geta tengt headphones við. Ég bjóst við hrikalegri midi-tónlist í Fusion og jú það er midi dauðans en það er alveg merkilega vel gert. Ekkert sem háir leiknum og minnir frekar mikið á tónlistina í Metroid Prime sem er einmitt einn besti leikur sem ég hef spilað. Hann og The Legend of Zelda: Ocarina of Time sitja á toppnum hjá mér. Þegar ég loksins klára að spila Baldur's Gate 2 þá verður hann eflaust þar með þeim. Jæja þá er að halda áfram að læra...eða spila Metroid Fusion. Svo er að tjékka hvort Ormsson selji FFTA og/eða WarioWare.

miðvikudagur, desember 17, 2003

 
GBA SP kominn í hús... ...more on this story as it develops.

þriðjudagur, desember 16, 2003

 
GBA SP stuff Fékk sendingu í dag með stöffi fyrir GBA SP sem Guðjón frændi ætlar að vera svo vænn að kaupa fyrir mig í fríhöfninni. Þetta var annarsvegar GBA SP Starter Pack og hinvegar kassar undir leiki. Amazon var svo sniðugt að senda þetta Í SITTHVORU LAGI! Þeir gera þetta alltaf...eitthvað til að maður fái hlutina sem fyrst...well ég vill fá þetta Í EINUM PAKKA fjandinn hafi það. Þetta kostar mig auka tollskýrslugjald og svo er þetta í huges kössum. Ég hefði getað komið 2 stórum möppum fyrir í hvorum kassanum. Nú í Starter Pack er fullt af misgóðum hlutum (sjá mynd): Nú þessir kassar eru nú bara...kassar. Hver þeirra hefur pláss fyrir 2 leiki og það er hægt að raða þeim hverjum ofan á annan þökk sé litlum holum á toppnum sem fæturnir á þeim fyrir ofan passa í. Það er ekki eins og í gamla daga þegar box fylgdu með hverjum GameBoy leik...nú þarf að nauðga viðskiptavinunum aðeins meira með því að láta þá kaupa sér kassa fyrir dýrmætu leikina sína. Nú þarf ég bara að bíða eftir að fá sjálfa tölvuna í hendurnar. Það átti að gerast í kvöld en flugvélinni hans Guðjóns seinkaði um klukkutíma þannig að ég fæ hana ekki fyrr en á morgun. Skiptir svo sem ekki miklu máli því ég á enga leiki í þetta undratæki. Efstur á lista er þó Wario Ware.

mánudagur, desember 15, 2003

 
Silent vs. Loud Í samtali við Palla um háværar tölvur kom þetta fram: Kristófer: silent vs. loud Palli: loud wins everytime Kristófer: sure doesn't Palli: stelpurnar fíla hávaðasamar tölvur Palli: trust me Kristófer: trust...you? Kristófer: hvar felur þú þær? Palli: ... in the mazda Ég ætla að efast um sannleiksgildi orða Palla, Mazdan gæti ekki falið margar stelpur....nema þær væru dvergar...er Palli kannski búinn að laða að sér fullt af dvergvöxnum stelpum sem hann svo felur í mözdunni?
 
Ég var á þjóðarbókhlöðunni í dag að læra í mestu makindum þegar ég þurfti skyndilega að pissa. Nú þegar þrýstingurinn fór að aukast rölti ég að næsta klósetti til að fara að létta á mér. Þeir sem hafa farið á klósettin á hlöunni vita hvernig þetta er, opnar inn í litla "kompu" þar sem hurðir að karla og kvennaklósettinu eru. Þegar ég opnaði hurðina voru 2 stelpur að bíða eftir að komast á kvennaklósettið og ég hugsaði "það er aldeilis.." því þá var frekar lítið pláss þarna. Nú þegar ég var að opna hurðina tók ég eftir því að hún varð soldið stíf þegar ég var búinn að opna ákveðið mikið en pældi ekkert í því fyrr en ég labbaði inn á karlaklósettið og sneri mér við til að loka. Þá sá ég að þriðja stelpan stóð bakvið hurðina þannig að ástæða stífleikans var að ég opnaði hurðina beint á hana og ég ýtti alveg temmilega fast á hana....ég forðaðist augnsamband og lokaði bara hurðinni á karlaklósettið þar sem ég var þangað til þessi tiltekna stelpa komst að á kvennaklósettinu. Þetta var nú samt bara henni að kenna...heimskulegt að standa upp við vegginn sem hurðin leggst að. Þessar stelpur stíga ekki í vitið... Þess má svo geta að klónið af Umu Thurman sat á móti mér á hlöðunni. Hún leit næstum alveg eins út og Thurman nema hvað hún var aðeins lágvaxnari.

sunnudagur, desember 14, 2003

 
Loksins er búið að sparka Palla af hinet svæðinu sínu þannig að hann varð að finna annað aðsetur fyrir sínar...ehh...skoðanir. Í tilefni af því hefur hlekknum verið breytt þannig að hann vísar nú á paulkepler.blogspot.com og nafni hlekksins einnig breytt úr Palli Skápahommi í "Palli Iðjuleysingi". Ætlaði fyrst að hafa það "Palli helvítis aumingi sem nennir ekki að læra eða vinna heldur er bara latt gimp og leikur sér í tölvunni allan daginn" en það var heldur langt. Hann byrjar nú skemmtilega með því að setja inn nýtt commentakerfi og þessa líka glæsilegu mynd af Eiði sem Eiður man ekkert eftir að hafi verið tekin enda var hann fullur mjög. Hann fór þó upp um mörg level þetta kvöld og var orðinn helvíti vígalegur barbarian undir lokin.

laugardagur, desember 13, 2003

 
Loksins! Frétt mbl.is Loksins er Keikó dauður! Kominn tími á að þetta helvíti dræpist, veit ekki hvað það er búið að eyða miklum pening í að aðlaga þetta heimska dýr að náttúrunni aftur. Það var ljóst frá upphafi að það tækist aldrei en menn, sem í dag titlast algjör fífl, vildu reyna það og spreðuðu svoleiðis peningum í hann. Háhyrningurinn var fluttur í sædýrasafn í Oregon þar sem hann fór í endurhæfingu og árið 1998 var hann fluttur með herflugvél til Vestmannaeyja til að undirbúa hann undir frelsið í hafinu. Þar var honum kennt að veiða og einnig var honum sleppt úr kví sinni í Klettsvík í þeirri von að hann myndi hitta aðra háhyrninga og blanda geði við þá. Talið er að þessar aðgerðir hafi kostað um hálfa milljón dala á mánuði eða um 38 milljónir. Úff þessum peningum hefði betur verið varið í eitthvað annað eins og hjálparstarf í þurfandi löndum frekar en þessa stóru fiskibollu. En ekki er þetta allur hálfvitaskapurinn, ónei. Phillips segir ekki ljóst hvort Keikó verði grafinn á landi eða fái útför til sjós en ræða þurfi við norsk stjórnvöld um það. Phillips segir að hann vilji helst láta grafa hvalinn á landi en þá væri síðar hægt að fjarlægja beinagrind hans og hugsanlega koma henni fyrir á safni. Já fólk kemur manni stöðugt á óvart með ótakmarkaðri heimsku sinni.
 
Bara svona til að vera með í djókinu: miserable failure

fimmtudagur, desember 11, 2003

 
Þetta er gert sérstaklega fyrir Jóa því hann hefur svo gaman að þessu. Í dag þurfti ég að nota Honduna í fyrsta skipti í 2 daga. Eins og glöggir hafa eflaust tekið eftir þá er búið að vera talsvert frost síðustu 2 dagana og á þriðjudaginn var líklegast sett met í frosið-vatn-sem-þarf-að-skafa-af-rúðum-bíla. Kiddi sótti mig einmitt á þriðjudagsmorguninn en þá ætlaði hann vera kominn kl hálf 8 en kom ekki fyrr en 8:05 vegna erfiðrar baráttu við frosnar rúðurnar á bílnum. Nú, Hondan var eins frosin og hægt er. Hún leit út eins og eftirlíking úr klaka. Til marks um það hversu frosin framrúðan var er hér soldið skemmtileg mynd. Frosnu handaförin voru gerð í gær en hitt einhverntíman rétt áður en ég tók myndina. Það var eins og klaki væri að vaxa á bílnum, það stóðu litlir klaka-stönglar upp af honum allstaðar. Allar hurðirnar voru frosnar fastar og það tók mig dágóðan tíma að þjösnast á annari afturhurðinni áður en hún loksins opnaðist. Skellti bílnum í gang og fór að skafa....sem tók góðar 10 mín :) Gríðarlega hressandi og upplífgandi, bíllinn var orðinn vel heitur þegar ég var búinn, sem hressti enn meira. Ég tók svo smá rúnt á honum og ætlaði svo að taka rosalega handbremsu beyju þegar ég kom að innkeyrslunni, enda undir miklum áhrifum úr Need For Speed: Underground. Það heppnaðist eitthvað ekki, handbremsan orðin svo slöpp að hjólin náðu ekki að læsast heldur rann ég bara áfram þar til bíllinn stoppaði. Ótrúlega impressive. Talandi um bíla þá var ég að dloda videoum úr Gran Turismo 4 Prologue og gott ef hann er ekki fallegasti bílaleikur sem ég hef séð. Ótrúlegt að það sé hægt að ná þessari grafík úr hinni aldurhnignu PS2.

miðvikudagur, desember 10, 2003

 
Ósmekklegt grín? Ég og Kiddi fórum á hlöðuna í gær, sem væri ekki svo merkilegt nema fyrir það að við hlustuðum á Zombie meðan við vorum á leiðinni, þátt þeirra Sigurjóns Kjartanssonar og Dr. Gunna. Þar fóru þeir að tala um að minningargreinar Morgunblaðsins og að það væri nú hægt að nota þær á margan góðan máta. Þeir ákváðu að vera "fyndnir" og völdu 2 konur sem þeir síðan sögðu okkur aðeins frá. Þetta voru þær Signý og Kristín sem létust ekki fyrir svo löngu síðan. Nú síðan segist Sigurjón fara úr öðrum sokknum og setja á hendina og nú ætli hann að leika Signýu meðan Dr. Gunni segist ætla að leika Kristínu. Síðan byrjuðu þeir að leika eitthvað fáránlegt samtal þeirra á milli með tilheyrandi kjánalátum. Þetta fannst mér nú helst til ósmekklegt grín og Kiddi var alveg sammála því. Ef ég hefði þekkt aðra hvora þessara kvenna þá hefði ég orðið mjög reiður við að heyra þessa menn gera svona lítið úr þeim. Fyndið eða ekki, ég hlustaði a.m.k. ekki á þennan "skedds" til enda. Þegar ég kom heim kíkti ég svo í moggann til að athuga hvort þessar konur hefðu virkilega verið þar og jújú, þarna voru þær báðar. Hélt þeir hefðu kannski bara búið eitthvað til sjálfir en nei. Maður heldur nú samt áfram að hlusta á þessa stöð þeirra enda er þetta eina stöðin sem er hægt að hlusta á þessa dagana. Þeir mættu að vísu vera með aðeins fjölbreyttari tónlist...maður er alltaf að heyra sömu lögin hjá þeim.

mánudagur, desember 08, 2003

 
Jæja, fyrsta "alvöru" prófið búið. Var í prófi úr "Japönsk Saga & Trúarbrögð" sem er litlar 2.5 einingar, þar af er sagan 1.7 einingar og trúarbrögðin 0.8 einingar. Efnið sem þurfti að lesa úr sögu spannaði allt frá 13þús fyrir krist fram til 1980 sem hljóðaði upp á litlar 300 bls í sögubók dauðans. Mér finnst þetta nú full gróft fyrir svona fáar einingar. Ég var nú staðráðinn í að ná þessu prófi þannig að ég lærði svo gott sem alla nóttina fyrir utan 1.5 tíma sem ég svaf...en þá bara í svona 5mín í einu því ég var svo hræddur um að sofa yfir mig að ég var alltaf að vakna. Coca Cola og Magic voru vinir mínir í nótt. Ég ætla að vara við leiknum Need For Speed: Underground en hann er stórhættulegur. Maður verður strax hooked á honum og það er því sem næst ómögulegt að hætta að spila hann. Og ég sem er ekki einu sinni bílaáhugamaður... Íslenskuátakið er svo loksins búið þannig að ég get slett eins mikið og ég vill. Þetta gekk nú alveg ágætlega en maður var oft stopp við leita að íslensku orði eða setningu yfir eitthvað sem maður hafði alltaf sagt á ensku. Efast um að þetta átak verði endurtekið í bráð. Þess má svo geta að iðjuleysinginn hefur ekki haft neitt betra að gera en spila KOTOR dag og nótt og tókst að klára hann á örugglega met-tíma.

mánudagur, desember 01, 2003

 
Íslenskuátak Já heldur betur. Ég ætla að reyna að sletta sem minnst úr ensku út þessa viku...það verður spennandi að sjá hvernig það gengur því ég sletti frekar mikið. Að minnsta kosti 30% þess sem ég læt út úr mér á hverjum degi er á ensku, sem er mikil vanvirðing við okkar ástkæra móðurmál. Íslenskan býr yfir miklum fjölda góðra orða sem er hægt að nota miklu meira, því miður er samfélagið orðið svo gegnsýrt af ensku að sumt virðist einfaldlega ekki "virka" nema það sé sagt á ensku. Næstum allt sjónvarpsefni er á ensku og allar bíómyndir líka þannig að þetta er í sjálfu sér ekkert undarleg þróun. Maður verður bara að grafa upp gömul og fáheyrð íslensk orð og fara að skella þeim fram í samræðum. Sumir vilja kannski meina að íslenskan sé úrelt tungumál sem leggja ætti niður og í staðin taka upp ensku sem móðurmál okkar. Ég er mjög ósammála þeirri skoðun. Við höfum tórað þetta lengi hérna á þessu dauðans skeri og tekist að viðhalda tungumálinu því sem næst óbreyttu í aldanna rás. Á bara að gefast upp eftir alla þessa baráttu? Ég held nú ekki. Mér tókst líka að plata einn með mér í þetta átak. Engin annar en Bjarni félst á þessa áskorun en hann er nú ekki þekktur fyrir annað en sletta mikið. Man eftir svipuðu átaki milli hans og Bjarna í Versló en þá ætluðu þeir að sjá hversu langt þeir kæmust án þess að sletta...þeir entust báðir í minna en 10mín. Við leyfum okkur þó undantekningar því Bjarni er að læra java og það er gjörsamlega ómögulegt að nota þessi íslensku nýyrði því þau eru einstaklega óþjál í munni, sérstaklega ef maður hefur notað ensku útgáfurnar í mörg ár. Svo verð ég sjálfur að tala á ensku við kennarann minn þannig að þetta jafnast út. Ef einhverjir aðrir vilja taka þátt í þessu átaki þá er þeim það velkomið. Þetta hefur gengið ágætlega í kvöld en betur má ef duga skal!

Archives

maí 2002   júní 2002   júlí 2002   nóvember 2002   janúar 2003   febrúar 2003   mars 2003   apríl 2003   maí 2003   júní 2003   júlí 2003   september 2003   nóvember 2003   desember 2003   janúar 2004   febrúar 2004   mars 2004   apríl 2004   maí 2004   júní 2004   júlí 2004   ágúst 2004   september 2004   október 2004   nóvember 2004   desember 2004   janúar 2005   febrúar 2005   mars 2005   apríl 2005   maí 2005   júní 2005   júlí 2005   ágúst 2005   nóvember 2005   janúar 2006  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?